VILLTA VESTRIÐ & HAWAII

Brottför

Los Angeles, California

Heimkoma

Los Angeles, California

Í þessari 20 daga ferð eru allir helstu staðir vesturstrandar Bandaríkjanna skoðaðir. Það má segja að þetta sé veisla fyrir skynjunarvitin þar sem hver hápunkturinn rekur annan. Skoðaðar eru helstu þjóðargersemar Bandaríkjanna eins og Miklagljúfur (Grand Canyon) ásamt fleirum náttúruperlum þar í kring eins og Bryce Canyon, Antylope Canyon og Monument Valley.

Einnig eru helstu stórborgir vesturstrandarinnar heimsóttar eins og Los Angeles, Las Vegas og San Fransisco og svo er draumur að keyra suður vesturströndina þar sem margt er að sjá.

Ferðin endar svo á því að flogið er frá LA til Honolulu á Hawaii og verið í stórkostlegu umhverfi í slökun í 4 nætur. Það er erfitt að toppa þessa ferð !

Innifalið

+ Flug á samfelldum miða með Icelandair til og frá Los Angeles

+ Flug til og frá Honolulu á Hawaii

+ Gisting í tveggja manna herbergi á sérvöldum góðum hótelum

+ Morgunmatur innifalinn á tveimur hótelum

+ Þrautreyndur enskumælandi fararstjóri

+ Fararstjórinn raðar fólki í sæti á hverjum degi þannig fáið þið mismunandi sjónarhorn á því sem fyrir augum ber. Einnig er fremsta sætaröðin laus til myndatöku fyrir hvern sem er.

+ Lúxus rúta með góðu sætabili, hallandi sætum, klósetti og wifi

+ Flutningur á töskum til og frá hótelherbergjum

+ Skoðunarferðir og aðgangaseyrir á helstu stöðum leiðarinnar

+ Valkvæðar sérferðir í boði gegn gjaldi

Ferðaskipulag

Dagur 1

KEFLAVÍK -> LOS ANGELES

Flogið er í samfelldu flugi Icelandair síðdegis og millilent í Seattle og lent á alþjóðaflugvellinum LAX í Los Angeles um kl. 22:30 að staðartíma. Best er að taka ókeypis "Shuttle Service" rútu sem fer beint á hótelið sem er þar skammt frá. Á hótelinu hittið þið fararstjóra ferðarinnar sem og aðra í hópnum. Gist er á Hilton Los Angeles Airport hotel

Dagur 2

LOS ANGELES -> SAN DIEGO -> LOS ANGELES

Í dag er farið í dagsferð suður til San Diego og skoðum þessa fallegu borg. San Diego er næst stærsta borg Kaliforníu og hún liggur við landamæri Mexíkó. Keyrt er m.a. til Seaport Village sem er mjög heillandi gömul höfn sem er me mörgum með frábærum veitingarstöðum og verslunum. Þið hafið svo frjálsan tíma til að skoða San Diego og rútan fer svo seinni partinn aftur til Los Angeles. Ef þið eruð þreytt eftir ferðalagið daginn áður getið þið tekið rólegan og hitt fararstjórann og samferðafólk seinna um daginn eða morguninn eftir þegar farið er frá hótelinu áleiiðis til Palm Springs. Gist er á Hilton Los Angeles Airport Hotel

Dagur 3

LOS ANGELES -> PALM SPRINGS -> PHOENIX

Í dag er keyrt sem leið liggur til til Phoenix í gegnum Palm Springs. Lagt er af stað stundvíslega kl. 8:00 og fólk beðið um að vera komið niður í anddyri hótelsins kl. 7:30. Palm Springs er stundum kallað leikvöllurinn fræga fólksins í Hollywood. Palm Springs er með líflegum miðbæ og skartar einnig frábærum golfvelli við jaðar San Jacinto fjallana. Einnig er stór og mikil stytta af Marilyn Monroe í miðbænum sem gaman er að skoða en hún tók miklu ástfóstri við borgina. Eftir að hafa skoðað Palm Springs munum við keyra í gegnum Indio og inn í Coachella dalinn. Gist er á Best Western Plus Executive Residency Phoenix North Happy Valley hótelinu.

Dagur 4

PHOENIX -> SEDONA -> GRAND CANYON

Í dag er farið um Sonora eyðimörkina,eina af fjölbreyttustu eyðimörkum Ameríku. Keyrt er svo áfram til Sedona sem er staðsett í einstöku jarðfræðilegu svæði og er umkringd einkennilegum rauðum hamrum með nöfnum eins og Cathedral og Coffee Pot. Þá keyrum við í gegnum stórkostlegu Oak Creek áður en komið er að Grand Canyon. Tignarlegur Þjóðgarðurinn Grand Canyon (Miklagljúfur) er einn af 7 stórkostlegustu náttúruundrum heims. Stoppað er við austurhluta gljúfursins við skokallað "South Rim" þar sem segja má að sé alger skylda að ganga fram og til baka meðfram gljúfrinu (tekur um klukkustund) og taka myndir í rólegheitum og njóta þessa ótrúlega náttúruundurs. Gist er á Squire Resort at Grand Canyon, Best Western Signature Collection

Dagur 5

GRAND CANYON -> MONUMENT VALLEY -> LAKE POWELL

Hið stórkostlega Grand Canyon er kvatt og ekið áfram til indjánasvæði Navajo og þaðan svo keyrt framhjá Cameron sem er gamll verslurnarbær. Haldið er svo áfram í gegnum indjánafriðland Navajo-þjóðarinnar áður en komið er í Monument Valley þjóðgarðinn. Þar má sjá víðfræga rauða og appelsínugula sandsteinstinda sem rísa upp úr landslaginu. Margir kannast vel við þetta landslag úr gömlu "Viltu vestrunum" sem John Vayne gerði fræga á árum áður. Gist er á Hyatt Place Page

Dagur 6

LAKE POWELL -> KANAB -> BRYCE CANYON

Í dag er ekiðað hinni stórkostlega Glen Canyon stífluna sem er næsthæstu steinboga-stífla í Bandaríkjunum. Þar má virð fyrir sér ægifagurt útsýnið yfir Powell vatnið, þar sem döggblátt vatn slær á móti háum rauðum klettaveggjum. Eftir það er haldið til Utah, sem þekkt fyrir Mórmonasamfélagið, og ekið svo í gegnum bæinn Kanab áður en komið er til hins stórkostlega Bryce Canyon. Gaman en nokkuð krefjandi er að ganga niður á botn gljúfursins og taka einstakar myndir af þessu náttúruundri. Um kvöldið, ef veður leyfir, mælum við með að horfa á stjörnuþakið sem er fullt af glitrandi stjörnum. Gist er á Bryce View Lodge

Dagur 7

BRYCE CANYON -> ZION -> LAS VEGAS

Zion er elsti þjóðgarður Utah og er þekktur fyrir ótrúleg gljúfur og stórkostlegt útsýni. Hægt er að feta í slóðir fornra frumbyggja og horfa á gríðarstóra sandsteinskletta sem líta út eins og þeir væru gerðir úr bleikum og rauðum rjóma ! Síðan er ekið í vestur áleiðis til Las Vegas í Nevada sem þarfnast engrar kynningar. Gist er á Luxor Las Vegas - Pyramid Rooms

Dagur 8

LAS VEGAS

Í dag er gott að hvíla sig á akstrinum og njóta lystisemda borgarinnar sem aldrei sefur, Las Vegas. Gaman er að ganga hið fræga Strip götu þar sem iðandi mannlífið og skæru ljósin eru í aðalhlutverki. Ómissandi er að prufa eitt af mörgum spilavítum borgarinnar en eitt af þeim stærri er einmitt staðsett á hótelinu. Í Las Vegas er mikið af heimsklassa veitingastöðum og á hverju kvöldi eru stórstjörnur með tónleika eða viðburði á einhverju af risahótelunum. Gott er að vera búinn að undirbúa sig með að kaupa miða fyrir fram. Gist er á Luxor Las Vegas - Pyramid Rooms

Dagur 9

LAS VEGAS -> DEATH VALLEY -> MAMMOTH LAKE

Gleðiborgin Las Vegas er kvödd og haldið út í eyðimörkina. Ekið er inn Dauðadal "Death Valley" sem er lægsti staður Bandaríkjanna en þar var mældist hæsta hitastigi sem mælst hefur á jörðinni, hvorki meira né minna en 56.7 °C. Stoppað er í Zabriskie Point til þess að njóta útsýnisins og Furnace Creek Visitor Center þar sem hinn frægi hitamælir stendur. Ekið er svo þvert yfir dalinn upp í Sierra Nevada fjöllin og til fjallabæjarins Mammoth Lakes. Bærinn var þekktur sem gullnámubær snemma á 20. öldinni, en í dag er hann þekktur fyrir frábær skíðasvæði og einstaklega falleg útsýni. Gist er á Mammoth Mountain Inn Hotel

Dagur 10

MAMMOTH LAKE -> YOSEMITE -> MODESTO

Keyrt er norður Tioga veg, sem er hæsti vegur Kaliforníu, og áfram um High Sierra sem endar svo inn í Yosemite þjóðgarðinum. Gaman er að ganga stíg sem liggur niður í botn garðsins þar sem komið er að skemmtilegum fossi. Einnig er gaman að skoða hið ógnarstóra Sequoia Grove tré sem er breiðasta tré jarðar. Yosemite er frábær staður til göngu en þar eru um það bil 800 mílur af gönguleiðum. Gist er á Doubletree by Hilton Modesto Hotel

Dagur 11

MODESTO -> SAN FRANSISCO

Ekið er snemma morguns til San Francisco sem er ein ástsælasta borg Bandaríkjanna. Þegar komið er til San Fransisco er farið í skoðunarferð sem endar svo á hótelinu. Um kvöldið er valfrjáls tími til að kynnast borginni betur. Gist er á Hilton San Francisco Union Square Hotel í miðri borginni

Dagur 12

SAN FRANSISCO -> NAPA VALLEY (Valfrjálst)

San Fransisco er frábær borg að heimsækja og þar er margt að sjá. Gaman er að þvælast um borgina og heimsækja staði eins og Union Square, Golden Gate brúna frægu og Fisherman's Wharf þar sem hefur fjöldi veitingastaða og skemmtilegt mannlíf á kvöldin innan um sæljóni sem halda þar til í höfninni. Einnig er mjög gaman að taka bátsferð undir Golden Gate brúna og koma jafnvel við í Alcatraz-eyjuna alræmdu. Fyrir þá sem langar að versla þá er Union Square með frábært úrval af alls konar verslunum sem er steinsnar frá hótelinu. Einnig er í boði skoðunarferð (gegn aukagjaldi) til Napa Valley sem er norður af San Francisco og er frægur fyrir einstaklega góð vín og frábær víngerðarhús eins og Domaine, Beringer, Sterling svo einhverjar séu nefndar. Mjög gaman er að fara í vínsmökkun í þessum frábæru víngerðarhúsum þar sem aðstaðan er til fyrirmyndar. Gist er á Hilton San Francisco Union Square Hotel

Dagur 13

SAN FRANSISCO -> MONTEREY/CARMEL -> CENTRAL COAST

Ekið er suður meðfram þjóðvegi 1 til Monterey þar sem stórkostlegt útsýni af Kyrrahafsströndinni er á hægri hönd. Í Monterey er gaman að skoða Old Fisherman's Wharf í miðbænum. Einnig er gaman að skoða Cannery Row hverfið við sjávarsíðuna þar sem John Steinbeck fékk innblástur fyrir skáldsögu sína sem ber nafn hverfisins. Eftir það er hinn fallegi smábær Carmel skoðaður, en þar var Clint Eastwood borgarstjóri í þónokkur ár. Þaðan er ekið hinn spennandi veg frá Pacific Grove til Pebble Beach. Gist er á Historic Santa Maria Inn Hotel

Dagur 14

CENTRAL COAST -> SANTA BARBARA -> SANTA MONICA, LA

Í dag er ekið suður um Santa Ynez dalinn til borgarinnar frægu Santa Barbara sem oft er nefnd "Ameríska Rivíeran" enda liggja göngustígar með pálmatóðri að hvítum sandströndum. Haldið er svo áfram á leið til Los Angeles þar sem keyrt er um borgina og allir helstu staðir borgarinnar skoðaðir. Komið er við í Hollywood, hluta af Beverly Hills og Century City áður en komið er til Santa Monica við endamark þjóðvegar 66. Í Santa Monica búa margir af frægustu leikurum og leikstjórum Hollywood. Gist er á Hilton Los Angeles Airport Hotel

Dagur 15

LOS ANGELES -> HAWAII

Flogið er til Hawaii frá LA. Farið er stutta leið með hótelskutlu frá hótelinu til LAX flugvallarins og flogið til Honolulu sem er um 3 kl.st flug. Við komu til Hawaii verður tekið á móti ykkur með blómakveðju að hætti eyjaskeggia. Gist er í fimm nætur og slakað á á þessari fallegu eyju..

Dagar 16 til 19

HAWAII

Gist er á vel staðsettu og flottu hóteli og hægt að ferðast um eyjarnar eða bara slaka á og njóta þess sem hótelið og Hawaii hefur upp á að bjóða. Gist er á OHANA Waikiki East hótelinu.

Dagur 20

HAWAII -> LOS ANGELES -> KEFLAVÍK

Eftir eftirminnilega ferð um helstu þjóðgarða og borgir vesturstrandar Bandaríkjanna og slökun og skemmtun á Hawaii er haldið heim á leið. Flogið er frá Honolulu kl. 7:00 að morgni beint til Seattle og svo áfram til Keflavíkur í samfelldu flugi Icelandair og lent í Keflavík að morgni næsta dags.

Brottfarir

29 August 2024

17 September 2024

Uppselt !